Reglugerð um hrognkelsaveiðar 2024 hefur verið breytt. Veiðidögum á grásleppuvertíð hefur verið fjölgað um 15, verða 55 talsins, samkvæmt reglugerð sem Matvælaráðuneytið hefur gefið út.

Á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda segir að samtökin hafi ekki verið upplýst um breytinga fyrr en eftir að ákvörðun hafi verið tekin. Þau hafa óskað eftir upplýsingum frá Matvælaráðuneytinu um hvaða aðstæður hafi komið upp sem leitt hafi til rúmlega þriðjungs fjölgunar veiðidaga.

Grásleppuvertíðin hófst 1. mars. 21. apríl var búið að veiða 1.151 tonn, samkvæmt tölum frá Fiskistofu. Fjöldi landana á bakvið þann afla eru 792, sem leggur sig á að hver löndun hefur skilað 1,45 tonni. Alls hafa 97 bátar hafið veiðar.

Á sama tíma í fyrra hafði vertíðin skilað 1.330 tonnum. Þess ber þó að geta að þá hófust veiðar 20. mars, en á móti kemur að þá höfðu 107 bátar hafið veiðar.

Afli sem hver löndun hefur skilað hefur lítið breyst milli ára, var 1,48 tonn á tímabilinu.