Slippurinn Akureyri sem framleiðir vinnslubúnað undir merkjum DNG by Slippurinn hefur gert hönnunarsamning við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og verkfræðistofuna Skipasýn.

Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að samningurinn felist í því að Skipasýn, sem fari með hönnun 29 metra togskips fyrir Vinnslustöðina, hanni lest skipsins á þann hátt að hægt sé að koma fyrir 250-280 kera sjálfvirku flutningskerfi. Þar að auki sé hannaður vinnslubúnaður með bestu mögulegu hráefnismeðferð að leiðarljósi.

„Samstarfið við Vinnslustöðina í Vestmanneyjum og Skipasýn hefur verið mjög gott og það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur að koma að verkefninu svona á fyrstu stigum hönnunar. Samningurinn er rökrétt framhald af þeirri forvinnu sem hefur átt sér stað í verkefninu undanfarin misseri,“ er haft eftir Magnúsi Blöndal, sviðsstjóra Slippsins Akureyri.