„Staðreyndin er sú að kolmunnaveiðin hefur verið ævintýri líkust að undanförnu og reyndar allt þetta ár,“ segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki NK í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Þar segir að kolmunnaskipin haldi áfram að koma með fullfermi af hráefni til fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði og að vinnslan gangi afar vel. Lokið hafi verið við að landa fullfermi úr Hákoni EA á Seyðisfirði í gær og í morgun hafi verið lokið við að landa rúmlega 3.200 tonnum úr Berki NK í Neskaupstað. Beitir NK sé kominn að landi með rúm 3.000 tonn og landi á Seyðisfirði á morgun.

Ekkert lát á góðri veiði

Hjörvar á Berki segir ekki annað vera hægt en að vera sáttur.

„Ég hef aldrei áður upplifað slíka veiði. Það virðist einfaldlega vera miklu meira af fiski en áður og það lætur nærri að að veiðin hafi verið 100 tonn á tímann. Í þessum túr fengum við þessi 3.200 tonn í sex holum. Oft hefur veiðin á þessum slóðum byrjað af nokkrum krafti en síðan hefur hún fjarað út. Núna helst aftur á móti þessi góða veiði og ekkert lát á henni,“ er haft eftir Hjörvari á svn.is.

Kemur sífellt meira af fiski og hratt gengur á kvótann

Að sögn Hjörvars hefur að undanförnu alltaf verið veitt á sama svæðinu og sífellt komi meira af fiski inn á það.

„Veiðarnar hafa farið fram á hinu svonefnda Gráa svæði og norður að svonefndri skiljulínu. Það sem einkennir veiðarnar er mikill afli á skömmum tíma og frábært hráefni fyrir verksmiðjurnar. Auðvitað gengur hratt á kvótann þegar svona fiskast,” segir Hjörvar svn.is.