Hnúfubakur sem myndaður var við Grænhöfðaeyjar undan ströndum Afríku hefur nú í fyrsta sinni einnig verið myndaður á fæðusvæði Vestur-Grænlands.

Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að á hverju ári flytjist hnúfubakar milli búsvæða í suðurhluta Atlantshafs, við Karabíska hafið og við strönd Afríku annars vegar og fæðusvæða í norðri hins vegar. Enn sé margt óþekkt um árlega flutninga þessara tignarlegu spendýra.

Tilgáta um göngur hvala

„Vegna alþjóðlegs átaks í vöktun, sem byggir á myndgreiningu og gervihnattamerkingum, hefur mótast sú tilgáta að hnúfubakar sem nærast vestan megin í Norður - Atlantshafi (frá strönd Bandaríkjanna til Vestur-Grænlands) flytjast til vestrænna búsvæða (við Karabíska hafið og Stóru- og Litlu - Antillaeyjar). Hnúfubakar frá austanverðu Norður-Atlantshafi (við Ísland og Noreg) fara hins vegar til búsvæða beggja vegna Norður - Atlantshafsins,“ segir á hafro.is.

Vöktun hnúfubaka er sögð möguleg vegna gagnagrunns um hnúfubaka í umsjón Allied Whale.

Hnúfubakur að nafni NA04936

Hnúfubakurinn umræddi ber heitið NA04936. „Hann var ljósmyndaður og skráður undan strönd Vestur-Grænlands, í Nunarsuit við Arsuk, í júlí 2021 í Glacialis leiðangrinum (Atlas leiðangur). Ríflega 22 árum áður (í mars 1999) var hann hins vegar myndaður og skráður við Grænhöfðaeyjar,“ segir á vef Hafró þar sem finna má eftirfarandi tengla með nánari upplýsingum um málið:

Grein um ferðalag NA04936 í fræðiritinu Vistfræði og þróun
Meira um Allied Whale
Meira um Glacialis leiðangurinn