Félög smábátaeigenda í Reykjavík og á Norðausturlandi hafa sent frá sér ályktanir um strandveiði og byggðakvóta. Í ályktun stjórnar Fonts segir að treysti stjórnvöld sér ekki til að tryggja veiðiheimildir í 48 daga, eins og segir í lögum um stjórn fiskveiða, sé óhjákvæmilegt að fækka dögum úr 12 í hverjum mánuði í 10. Samhliða þeirri breytingu falli brott ákvæði um skyldu Fiskistofu að stöðva veiðar á strandveiðitímabilinu.

Með breytingunum verði jafnræði tryggt milli allra landshluta.

Byggðakvótar

„Almennur byggðakvóti hefur það fram yfir sértækan að skilyrði um að fiskiskip landi tvöföldu því magni sem þau fá úthlutað til vinnslu innan viðkomandi byggðarlags eru einföld, skýr og hafa reynst vel í framkvæmd. Fiskistofa hefur eftirlit með að þau séu uppfyllt og nákvæmt yfirlit yfir stöðu almenns byggðakvóta er alltaf aðgengilegt á vef Fiskistofu. Almennur byggðakvóti er háður lágmarksverði til sjómanna og skilar viðkomandi hafnarsjóðum því eðlilegum tekjum.

Byggðastofnun hefur lögum samkvæmt eftirlit með nýtingu á sértækum byggðakvóta en þar liggja ekki fyrir neinar opinberar upplýsingar um raunverulega framkvæmd samninga um þann kvóta, sem verður að teljast undarlegt í ljósi þeirra miklu verðmæta sem felast í þeim samningum,“ segir í ályktun Fonts.

Stöðva verður yfirgang stórútgerðarinnar

Á fundi stjórnar Smábátafélags Reykjavíkur sem haldinn var 23. mars sl. var rætt um strandveiðar sem hefjast 2. maí nk. Fundinum lauk með samþykkt eftirfarandi ályktunar.

„Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur skorar á matvælaráðherra að tryggja strandveiðar í 48 daga jafnskipta í fjóra mánuði maí - ágúst. Á engan hátt megi það henda að veiðarnar verði stöðvaðar í júlí eins og gerst hefur undanfarin tvö ár. Stöðva verður yfirgang stórútgerðarinnar í að sölsa undir sig veiðiheimildir sem ætlaðar hafa verið til að efla hinar dreifðu byggðir. Breyta verður reglugerð til að koma í veg fyrir slíkt og færa veiðiheimildirnar til strandveiða. Strandveiðar í fjóra mánuði tryggir jöfnuð milli allra landshluta til farsældar fyrir þjóðina.“