Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar með um 616 tonn af fiski upp úr sjó. Þetta kemur fram á vef Fisk Seafood.

Verðmæti afla er um 238 milljónir króna.

Af heildaraflnum voru um 231 tonn af ýsu, 149 tonn af ufsa, 103 tonn af gullkarfa og
100 tonn af þorski. Minna var af öðrum tegundum.