Stýrihópur um verndun hafsvæða innan íslenskrar lögsögu sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði í mars í fyrr hefur skilað áfangaskýrslu til ráðherra.

Á meðal tillagna í skýrslunni er að matvælaráðherra feli Hafrannsóknastofnun að leiða vinnu við samhæfingu, aðgengi og uppbyggingu gagnagrunna varðandi náttúrufar hafsins í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og aðra aðila sem búa yfir gögnum og upplýsingum.

„Þetta er forsenda markvissrar vinnu við skilgreiningu verndarsvæða í hafi auk opinnar umræðu um vistkerfi í hafi og verndun þeirra,“ segir í tilkynningu á vef matvælaráðuneytisins.

Greini áhrif nýtingar á líffræðilega fjölbreytni

Einnig er lagt til að lokið verði við greiningu á áhrifamætti settra reglna um nýtingu nytjastofna í hafi við verndun líffræðilegrar fjölbreytni, meðal annars með hliðsjón af leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN).

„Greiningin verði unnin af Hafrannsóknastofnun í samstarfi við vísindateymi stýrihópsins og kynnt fyrir helstu hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Ráðherra taki síðan ákvörðun á grunni greiningarinnar auk annarra sjónarmiða hvort svæði sem takmarkanir gilda um varðandi nýtingu nytjastofna verði skilgreind og tilkynnt sem friðlýst svæði eða hluti virkrar svæðisverndar.“

Umhverfisráðuneytið skoði friðlýsingar

Lagt er til að í samráði við Samstarfsnefnd matvælaráðuneytisins um bætta umgengni um auðlindir sjávar verði leitað tillagna að svæðum sem kæmu til greina sem verndarsvæði í hafi. Jafnframt verði leitað tillagna um hvernig þessari þekkingu verði best safnað.

„Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið skoði í samvinnu við Umhverfisstofnun þegar friðlýst svæði og athugi hvort til greina komi að tilkynna fleiri svæði sem friðlýst svæði í hafi. Fjögur svæði hafa þegar verið tilkynnt: Surtsey, Eldey og tvær hverastrýtur í Eyjafirði,“ segir áfram á vef matvælaráðuneytisins.

Reglur um nýtingu samræmist vernd

Næstu skref í starfi hópsins eru meðal annars sögð vera þau að skilgreina ferli við útnefningu nýrra verndarsvæða, í samráði við hagsmunaaðila. Þá verði skilgreint hverjir geti sett fram tillögur og með hvaða hætti.

Einnig verður lokið greiningu á núverandi regluverki um stjórnun nýtingar nytjastofna sjávar og hvernig regluverkið samræmist viðmiðum um aðra virka svæðisvernd.

Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn ljúki störfum í apríl.