Opnað hefur verið fyrir spurningakönnun til að kanna viðhorf hagaðila í sjávarútvegi og tengdum greinum til verndarsvæða í sjó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknasetri á Vestfjörðum.

„Könnunin er liður í því að kortleggja þessi viðhorf og þekkingu hagaðila til svæðisbundinnar stýringar og verndar hafsvæða. Spurningakönnunin fjallar að miklu leyti um gildandi reglugerðir innan fiskveiðistjórnunarkerfisins og tengingu þeirra við vernd og stýringu líffræðilegra auðlinda. Könnunin er opin öllum sem láta sig hafið og nýtingu þess varða,“ segir í tilkynningunni sem send er út af Guðbjörgu Ástu Ólafsdóttur, forstöðumanni rannsóknarsetursins sem heyrir undir Háskóla Íslands.

Þrjátíu prósent hafsvæða undir vernd

Í tilkynningunni segir á fimmtándu ráðstefnu aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytnis sem fór fram í desember 2022 hafi verið samþykkt ný stefna til ársins 2030. Meginmarkmið hennar sé að stöðva hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og stuðla að verndun, endurheimt og sjálfbærri nýtingu líffræðilegra auðlinda.

„Stefnan er margþætt en hún saman stendur af tuttugu og þremur markmiðum sem taka til ólíka þátta. Þriðja markmið stefnunnar hefur þó hlotið mesta athygli en það er hið svokallaða „30 fyrir 30 markmið“. 30 fyrir 30 er grípandi hugmynd sem snýst í grundvallaratriðum um að 30 prósent af bæði haf og landsvæðum verði komin undir virka vernd og stýringu fyrir árið 2030,“ segir í tilkynningunni.

Nýting á verndarsvæðum undir stýringu

Tekið er fram að verndarsvæðin þurfi ekki að vera lokuð fyrir allri nýtingu. „En stýring þeirra þarf að hafa ótvíræðan ávinning fyrir vernd eða endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni. Þannig er hægt að kanna gildi annarra verndar- eða stjórnunaraðgerða til dæmis svæðisbundinna aðgerða við fiskveiðistjórnun,“ segirí tilkynningunni.

Ísland er sagt vera meðal þjóða sem samþykkt hafa þessa stefnu. Íslensk stjórnvöld séu að kanna mögulegar útfærslur. „Reynslan sýnir að virk þátttaka hagaðila bætir útfærslu verndar- og stjórnunaraðgerða og eykur sátt. Hagsmunir ólíkra nýtingaraðila fara þó ekki alltaf vel saman, hvort sem nýtingin er til atvinnustarfsemi eða tómstunda. Það er því nauðsynlegt að skoða afstöðu fjölbreyttra hópa hagaðila í málefnum hafsins.“

Allir hvattir til þátttöku

Allir eru sagðir hvattir til að taka þátt í könnunni og koma sjónarmiðum sínum á framfæri óháð hlutverki þeirra innan sjávarútvegs, nýtingu sjávar eða vernd hafsvæða. Könnunina má finna hér.

„Könnunin er nafnlaus og geta umsjónarmenn hennar ekki tengt einstaklinga við svör. Það er ósk aðstandanda þessarar könnunar að hún verði liður í því að bæta þessa vinnu á Íslandi og hlutlaus vettvangur fyrir fjölbreytta hagaðila til að koma viðhorfum sínum á framfæri. Niðurstöður könnunarinnar verða gerðar aðgengilegar öllum þegar úrvinnslu er lokið en einnig er gert ráð fyrir að birta niðurstöður rannsóknarinnar í vísindagreinum.“

Að endingu er sagt frá því að af sama tilefni verði haldin málstofan 30 fyrir 30 - áhrif á sjávarútveg á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu 2. nóvember 2023. Þar muni sérfræðingaar gefa stuttar kynningar um málefni sem tengjast verndarsvæðum í hafinu. Að kynningum loknum verði pallborðsumræður.