Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær.

Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar þar sem rætt er við skipstjórana, Jón Valgeirsson á Bergi og Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey.

Haft er eftir Birgi Þór sagði að nú sé á dagskránni að spara þorskinn.

„Uppistaða aflans hjá okkur var ýsa og síðan aðeins þorskur, steinbítur og koli með. Það gengur ekki að moka endalaust upp þorskinum, við verðum að eiga einhver þorskkvóta í sumar,“ segir Birgir Þór. Það hafi verið veisla upp á síðkastið en nú sé komið undir lok vertíðar og ekki alveg sama kraftveiðin.

Þarf að sækja aflann austar

„Í þessum túr vorum við að veiðum austur á Öræfagrunni og Ingólfshöfða. Það þarf sem sagt að sækja aflann austar en verið hefur. Túrinn byrjaði rólega en við lentum í góðri veiði á laugardag. Við vorum þrjá sólarhringa í túrnum og það fór einn sólarhringur í stím fram og til baka. Við vorum sem sagt einungis tvo sólarhringa að veiðum. Við vorum heppnir með veður. Það brældi aðeins í einn dag en annars var veðrið bara gott,” segir Birgir Þór á svn.is.

Jón Valgeirsson segir einnig að nú þurfi að fara austar til veiða.

Áhöfnin sest á skólabekk

„Það hefur hægst verulega á veiðum við Eyjar enda fiskurinn búinn að hrygna og hverfur þá af vertíðarslóðinni. Við vorum í tvo sólarhringa að veiðum í þessum túr. Það var byrjað á Víkinni og þar fékkst þorskur, síðan var haldið á Öræfagrunn og þar var ýsu að fá. Þá kom röðin að Ingólfshöfða en þar fékkst bæði þorskur og ýsa. Við restuðum síðan á Öræfagrunni og tókum þar enn meiri ýsu,“ er haft eftir Jóni.

Vestmannaey hélt til veiða strax að löndun lokinni en áhöfn Bergs mun sækja Slysavarnaskóla sjómanna og láta ekki úr höfn fyrr en á fimmtudagsmorgun. „Við þurfum að sækja skólann á fimm ára fresti og höfum svo sannarlega gott af því,” segir Jón ávef Síldarvinnslunnar.