Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun kynna frumvarp til laga um lagareldi á opnum fundi á miðvikudaginn. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Frumvarpið er nú til meðferðar hjá atvinnuveganefnd að loknu samráðsferli í samráðsgátt.

„Að lokinni kynningu ráðherra mun Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri matvæla fara nánar yfir þær breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu að loknu samráðsferli. Tilgangur frumvarpsins er að skapa greininni ramma sem tryggir að sjálfbærni og vernd lífríkisins verði höfð að leiðarljósi og hefur víðtækt samráð verið haft hagaðila til að ná settu marki,“ segir á stjr.is.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá kemur fram að fulltrúar frá Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun muni einnig segja frá aðkomu sinna stofnana að frumvarpinu og hverju lögin myndu breyta fyrir þeirra starfsemi.

Streymt verður frá fundinum sem fer fram í sal Club Vox á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica, 8. maí, klukkan 11.00.