Grindvíkingar setja oft hagsmuni atvinnunnar og byggðalagsinsr ofar eigin hagsmunum. Þetta segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, í nýjum pistli á vefsíðu fyrirtækisins undir yfirskriftinni Hálft ár af hörmungum og hetjudáð:

„Í dag 10. maí  er hálft ár liðið frá því hörmungarnar byrjuðu með jarðskjálftum jarðsigi og flekahreyfingum í Grindavík. Þann dag vorum við rekin af heimilum okkar út í endalausa óvissu sem ekki sér fyrir endann á. Í kjölfarið fylgdu fjögur mánaðarleg gos í næsta nágrenni við bæinn okkar og þegar þetta er skrifað halda allir í sér andanum og bíða þess fimmta. Aprílmánuður var fyrsti mánuðurinn sem náttúran sló okkur ekki utan undir frá því í október með aflmiklum náttúruhamförum.

En það er annað afl  sem birst hefur sem mótvægi við hinn óvægna eyðingamátt. Það er fólkið sjálft sem byggir bæinn. Með þrautseigju og æðruleysi hefur það sýnt hvað í því býr. Þar sem einhver von hefur verið að halda starfsemi í gangi hefur það verið gert. Þar sem þurft hefur að verja verðmæti fyrirtækja eða sveitarfélagsins  hefur ekki staðið á fólki að mæta. Oft hafa hagsmunir atvinnunnar og byggðalagsins verið settir ofar eigin hagsmunum. Fólk vinnur hetjudáð á hverjum degi við vinnu og til að komast sjálft af í ringulreiðinni sem fylgir óundirbúnum búferlaflutningum. Allt kapp er lagt á að börnin skaðist sem minnst. Það er erfiðasta verkefnið.

Mér er þakklæti efst í huga þegar ég hugsa til samstarfsmanna minna og ég hef þá trú að algóður Guð fylgi okkur á vegferð þeirra breytinga sem við erum nú að upplifa. Verum þolinmóð gagnvart verkefninu og verum eins gætin og kostur er við þær erfiðu aðstæður sem við erum að kljást við. En umfram allt skulum við vera góð og tillitsöm við hvert annað.

Þess óskar

Pétur Hafsteinn Pálsson,“ segir á visirhf.is.