Hafrannsóknastofnun boðar til fundar um málefni ferskvatnsfiska 16. maí næstkomandi. Á dagskránni er meðal annars erindi um strokulaxa úr sjókvíaeldi.

Dagskránna má sjá á vef Hafrannsóknarstofnunar:

„Dagskrá fundar:

8:30-9:00 Morgunverður

9:00-9:05 Fundur settur

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar

9:05-9:25 Laxveiði og veiðihorfur sumarið 2024

Hlynur Bárðarson, Hafrannsóknastofnun

9:25-9:45 Strokulaxar úr kvíaeldi

Leó Alexander Guðmundsson, Hafrannsóknastofnun

9:45-10:05 Fiskrækt og sjálfbærni laxastofna

Guðni Guðbergsson, Hafrannsóknastofnun

10:05-10:20 Kaffihlé

10:40-11:00 Rafræn skráning veiði

Ingi Rúnar Jónsson og Ragnar Ingimundarson, Hafrannsóknastofnun.“

Fundurinn verður hjá Hafrannsóknastofnun í Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Gestum verður boðið að þiggja morgunverð fyrir fundinn. Þátttakendur þurfa að skrá sig á hafro.is.