Beitir NK kom til Neskaupstaðar aðfaranótt sunnudags með rúmlega 3.000 tonn af kolmunna eða fullfermi.

„Jú, það er ekki annað hægt. Hún er eins og best gerist,“ er haft eftir Sigurði Valgeiri Jóhannessyni skipstjóra um veiðina á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Hann segir öll skip að fiska og menn brosi sínu breiðasta.

Ekki hægt að biðja um meira

„Íslensku skipin eru gjarnan að landa einum fullfermistúr í viku og það er eiginlega ekki hægt að biðja um neitt betra. Veiðin fer fram á gráa svæðinu í færeysku lögsögunni og það er nánast ekki hægt að kvarta undan neinu. Veður hefur verið gott, ekkert veiðarfærahafarí og aflinn jafn og góður,“ segir Sigurður á svn.is.

Þá segir Sigurður veiðina fara fram á stóru svæði þannig að það sé vel rúmt á miðunum.

Rússarnir ekki á svæðinu

„Það munar miklu að nú eru rússnesk skip ekki að veiðum á gráa svæðinu en þau mega ekki vera þar samkvæmt nýjum samningi við Færeyinga. Ef Rússarnir mættu veiða þarna væru þeir með 15 stóra togara og það munar um minna,“ er haft eftir Sigurði sem kveður veðrið gott og vor í lofti.

Þá segir að von sé Hákoni EA með fullfermi af kolmunna til Seyðisfjarðar í dag. Barði NK og Vilhelm Þorsteinsson EA sé að fylla á miðunum. „Það er ljóst að framundan eru næg verkefni hjá fiskimjölsverksmiðjunum í Neskaupstað og á Seyðisfirði,“ segir á svn.is.