Klukkan eitt í dag var björgunarskipið Hafbjörg í Neskaupstað kallað út vegna lítils fiskibáts sem hafði misst vélarafl. Báturinn var þá staddur í mynni Seyðisfjarðar og rak hægt til suðurs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að ekki hafi verið hætta á að báturinn ræki til lands.

Hafbjörg lagði úr höfn klukkan 13.15 og hélt áleiðis að bátnum og var búið að koma dráttartaug í hann klukkan 15.00.

Áætlað var að Hagbjörg kæmu með fiskibátinn í togi til hafnar í Neskaupstað um klukkan 17.00.

Björgunarskipið Hafbjörg með fiskibátinn í togi. Mynd/Slysavarnafélagið
Björgunarskipið Hafbjörg með fiskibátinn í togi. Mynd/Slysavarnafélagið