Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra flutti ávarp við opnun matarhátíðarinnar Ruta de Bunyols de Bacallá (Á saltfiskbolluslóðum) í Barcelona í dag. Hátíðin fer fram samhliða Seafood Expo Global, stærstu sjávarútvegssýningu heims.

Matvælaráðherra heimsótti sýninguna á opnunardaginn ásamt Unni Orradóttur Ramette, sendiherra Íslands á Spáni. Þær kynntu sér starfsemi sýnenda á svæðinu og áttu góðar samræður við fulltrúa íslensku fyrirtækjanna.

Íslensk/katalónskar saltfiskbollur um alla borg

Ruta de Bunyols de Bacallá er samstarf markaðsverkefnisins Bacalao de Islandia, Gremi de Bacallaners de Cataluña (félag saltfisksölumanna í Katalóníu), Olis Bargalló (Katalónskur framleiðandi ólífuolíu) og Mercats de Barcelona (matarmarkaðir Barcelonaborgar). Á hátíðinni munu 25 veitingastaðir og 10 matarmarkaðir í Barcelona bjóða upp á sína útgáfu af Bunyols de bacallá (saltfiskbollur) úr íslenskum fiski frá 26 apríl til 12 maí. Rétturinn er vinsæll skyndibiti víða í Katalóníu og þekkja hann allir Barcelonabúar, jafnt ungir sem aldnir. Þá verður einnig boðið upp á vinnustofur fyrir börn á matarmörkuðum þar sem þau geta lært að elda Bunyols de Bacallá, að sjálfsögðu úr íslenskum fiski.

Formleg opnun hátíðarinnar fór fram í dag á hinum þekkta matarmarkaði La Boqueria í miðborg Barcelona og flutti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ávarp við það tækifæri fyrir blaðamenn og aðra gesti. Að opnun lokinni hélt ráðherra ásamt föruneyti til hádegisverðar á Mercat Ninot, þar sem fleiri þátttakendur í La Ruta de Bunyols de Bacallá er að finna.

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslensku fyrirtækjanna á Seafood Expo Global ásamt því að reka markaðsverkefnið Bacalao de Islandia, sem starfrækt hefur verið frá því 2013