Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 85 tonnum í Vestmannaeyjum á síðasta vetrardag. Meirihlutinn var ýsa en einnig var karfi í aflanum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar þar sem rætt er við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra sem kveður ekki annað hægt að segja en að vel hafi gengið.

„Staðreyndin er sú að við þurftum að skammta okkur afla. Það þurfti að taka tillit til þess hve áhöfnin kæmi miklu í gegn. Það var einfaldlega mokveiði,“er haft eftir Hjálmari Ólafi. Veiðarnir hafi byrjað á Öræfagrunni og síðan var haldið í Grindavíkurdýpið þar sem tekin voru þrjú karfahol.

„Það var töluvert langt fyrir okkur að fara að austan og vestur eftir, en við vorum einungis í tvo sólarhringa að veiðum í túrnum,” segir Hjálmar Ólafur.

„Samkvæmt öruggum heimildum er þetta í fyrsta sinn sem Gullver landar bolfiski í Vestmannaeyjum, en hins vegar landaði hann þar makríl þrisvar eða fjórum sinnum sumarið 2014. Þá var makríllinn veiddur í Skerjadýpinu, Grindavíkurdýpinu og á Selvogsbanka,“ segir á svn.is.