Síldarvinnslan hefur viðræður um kaup á helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf., sem er alfarið í eigu Samherja. Samherji er stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar með 30% hlut. Sagt er frá þessu á vef www.vb.is.

Stjórn Síldarvinnslunnar hefur samþykkt að hefja viðræður við Samherja um kaup á helmingshlut í sölufélaginu Ice Fresh Seafood ehf., sem sérhæfir sig í sölu- og markaðssetningu sjávarafurða frá Íslandi. Ice Fresh Seafood ehf. er að fullu í eigu Samherja hf. sem er jafnframt stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar með 30% hlut.

„Telur stjórnin það rökrétt framhald af vexti og auknum umsvifum Síldarvinnslunnar hf. á síðustu árum, m.a. með kaupum á Vísi hf., að kanna frekari möguleika á því að styrkja sölu- og markaðsmál félagsins,“ segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fram kemur að Ice Fresh Seafood hafi m.a. séð um sölu á hluta afurða Síldarvinnslunnar og Vísis á undanförnum árum. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa.

Velta Ice Fresh Seafood nam 332,2 milljónum evra árið 2021, eða sem nemur 49 milljörðum króna á gengi dagsins. Félagið hagnaðist um 1,8 milljónir evra eða um 250 milljónir króna. Eignir félagsins voru bókfærðar á 78,6 milljónir evra í árslok 2021, eða sem nemur 11,7 milljörðum króna miðað við núverandi gengi krónunnar. Eigið fé var 26,2 milljónir evra eða um 3,9 milljarðar króna.