Útflutningsverðmæti frystrar grásleppu, söltuðum grásleppuhrognum og grásleppukavíar nam 1,6 milljarði króna árið 2023, sem er 3% hærri verðmæti en á árinu 2022. Þetta er samkvæmt samantekt Landssamband smábátasjómanna úr tölum Hagstofu Íslands.

Söltuð grásleppuhrogn

Verð á söltuðum grásleppuhrognum lækkaði um 19% milli ára. Fob-verð á hverri tunnu var 107 þúsund á árinu 2023. Umreiknað í evrur var verðið 718 EUR á móti 948 EUR á hverja tunnu árið 2022. Magn í útflutningi jókst verulega milli ára, fór úr 3.142 tunnum á árinu 2022 í 5.239 tunnur á sl. ári. Heildarverðmætin námu 563 milljónir. Á síðastliðnum 5 árum [2019 - 2023] var verðið hæst árið 2019, 206 þúsund kr. fyrir hverja tunnu, 1.485 EUR. Magnið var hins vegar mest á tímabilinu árið 2021, 6.216 tunnur af söltuðum grásleppuhrognum.

Grásleppukavíar

Útflutningsverð á grásleppukavíar hækkaði um 8% milli ára. Umreiknað í evrur svaraði það til 5% hærra verði en árið 2022. Magnið dróst hins vegar saman um 19%. Aðeins voru flutt út 394 tonn á erlenda markaði í fyrra. Til samanburðar voru seld 660 tonn af grásleppukavíar á árinu 2019.

Frosin grásleppa

Eftir sögulega lægsta verð árið 2022, rauk verð á frosinni grásleppu upp á árinu 2023. Nam verðhækkunin 90% milli ára. Hvert kíló skilaði 159 krónum eða 1,18 USD. Alls voru flutt til Kína 709 tonn sem var aukning um 37% milli ára. Langt er þó í land að verð og magn nái sömu hæðum og var fyrir heimsfaraldurinn. Þá fengust 2,05 dollarar/kg árið 2019 og 2.619 tonn voru seld á árinu 2020.