Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Fiskifréttir fjölluðu jafnframt ítarlega um fyrirtækið og verkefnin framundan í mars sl.

Í tilkynningunni segir að í undirbúningsverkefninu verða kannaðar forsendur fyrir því í samvinnu við sjómenn og aðra hagsmunaaðila í Kenía, að innleiða notkun á nýrri tegund Plúto plast fiskihlera og notkun á einangruðum endurvinnanlegum fiskikössum, svokölluðum „minitubs“. Samhliða því verða skoðaðar leiðir til að bæta vinnubrögð við meðferð aflans, allt frá veiðum til markaðar. Verði niðurstöður jákvæðar verður ráðist í framhaldsverkefni og innleiðingu. Markmiðið er því að ný vinnubrögð og tækni við veiðar geti leitt til umhverfisvænni, hagkvæmari og sjálfbærra veiða í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Stefnt er að því að bæði fiskihlerarnir og fiskikassarnir verði framleiddir í Kenía, að hluta til úr endurunnu plasti, sem stuðlar að hringrásarhagkerfi, bættu umhverfi, atvinnuuppbyggingu og atvinnuþróun.

Við innleiðingu mun almenningur í Kenía eiga kost á heilnæmari fiskafurðum og atvinnu við að safna plastúrgangi og skila honum til samstarfsaðila gegn gjaldi.

Pluto fiskihlerarnir þurfa ekki viðnám við botn til að opna fiskitrollið, eru mun léttari í togi og leiða til hagkvæmari og sjálfbærra veiða. Með fiskikössunum og kælingu er unnt að varðveita gæði aflans mun betur en nú er og þar með að nýta sjávarauðlindina betur, tryggja gæði og heilnæmt sjávarfang.

Stefnt er að því að ljúka undirbúningsverkefninu í nóvember á þessu ári.