„Þetta er fjórða síldarveislan á aðventu og sú fjölmennasta frá upphafi. Við höfum skapað skemmtilega hefð sem fellur vel í kramið hjá okkar fólki og öðrum sem mæta,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, í tilefni af afar vel heppnaðri síldarveislu VSV fimmtudaginn 7. desember.

„Við bjóðum öllum starfsmönnum í mat og svo mæta líka fyrrverandi starfsmenn og fleiri síldarvinir eftir atvikum. Heiðurinn af öllu saman eiga auðvitað Inga og Bennó skuldlaust [Ingigerður Helgadóttir og Benóný Þórisson].

Síld er óumdeilanlega ein gómsætasta afurð sjávar sé hún rétt verkuð.
Síld er óumdeilanlega ein gómsætasta afurð sjávar sé hún rétt verkuð.

Síldarsamanburður

Þau sjá um að verka jólasíld Vinnslustöðvarinnar, skiptast á síldarfötum við önnur uppsjávarfyrirtæki og skipuleggja sjálfa síldarveisluna hér með öllu tilheyrandi; kartöflum, rúgbrauði, eggjum og drykkjarföngum. Veisluborðið er glæsilegt og matsalurinn skreyttur í samræmi við tilefnið.“

Menn vel mettir af góðri síld og jólamiði.
Menn vel mettir af góðri síld og jólamiði.

Aðalmálið í síldarveislunni var að sjálfsögðu að bragða á jólasíld VSV og hún þykir að sjálfsögðu bera af, með fullri virðingu fyrir keppinautum úr öðrum héruðum og fyrirtækjum. Tómatsíld Ingu deildi toppsætinu með VSV-síldinni.

Sú óvænta niðurstaða varð á Síldarveislu VSV að jólasíld VSV þótti bera af öðrum síldum.
Sú óvænta niðurstaða varð á Síldarveislu VSV að jólasíld VSV þótti bera af öðrum síldum.

Þarna var líka síld frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum, Ísfélaginu á Þórshöfn, Eskju, Síldarvinnslunni, Skinney-Þinganesi og Loðnuvinnslunni.

Öll síldin afar góð en...

Veislan er öðrum þræði gæðamat fyrir eigin framleiðslu og keppninautanna, það er að segja hvaða síld komi næst VSV-síldinni að gæðum, áferð, umbúðum og þar fram eftir götum. Sindri segir að skoðanir séu eðlilega skiptar um hvaða síld hljóti 2. og 3. sætið og afgreiðir málið á diplómatískan hátt líkt og fyrirmyndar sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni:

„Öll var síldin afar góð, hvaðan sem hún kom. Uppskriftir eru mismunandi og sömuleiðis er mismunandi hvað sett er með bitunum í föturnar. Þetta er einmitt það sem gerir veisluna spennandi og áhugaverða. Sumt svipað, annað ólíkt, allt bragðgott.“