Viðskiptasendinefnd með íslenskum sjávartæknifyrirtækjum var í Kanada dagana 6.-10. september á vegum Íslandsstofu og Sendiráðs Íslands í Kanada. Fyrirtækin sem tóku þátt voru Frost, HPP, Kapp og Slippurinn Akureyri en einnig fóru með fulltrúar frá Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka.

Fyrst var förinni heitið til Montréal þar sem hópurinn kynnti sér Canadian seafood Show. Daginn eftir var flogið til Halifax en þar um slóðir er mikil gróska í sjávartengdri starfsemi. Íslenska sendinefndin bauð til kynningar í COVE (center for ocean and venture entrepreuneurship). Talsverður áhugi var á viðburðinum og mættu þangað fulltrúar frá yfir 40 kanadískum fyrirtækjum sem voru í leit að lausnum og samstarfsaðilum í þessum geira.

Að lokum var farið í heimsókn í Irving bátasmíðastöðina í Halifax og fékk hópurinn kynningu á starfseminni, en Irving er stærsti bátaframleiðandi Kanada.

Ferðin gekk vel og vakti sjávartækni frá Íslandi greinilega athygli og fjallað var um heimsóknina í nokkrum innlendum fjölmiðlum.