Sumarlokun í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hefst miðvikudaginn 5. júlí og mun vinnslan hefjast á ný 14. ágúst. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins

„Að sögn Róberts Inga Tómassonar framleiðslustjóra hefur vinnsla í húsinu gengið vel að undanförnu en áhersla hefur verið lögð á framleiðslu á ferskum hnökkum. Ómar Bogason, rekstrarstjóri frystihússins, segir að sumarlokunin verði notuð til að dytta að ýmsu í húsinu,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.

Verið var að vinna afla úr Gullver NS sem kom til löndunar á mánudaginn. Afli skipsins var 88 tonn, mest ýsa, þorskur og karfi.

„Steinþór Hálfdanarson skipstjóri segir að aflinn hafi fengist í Hvalbakshalli og í Berufjarðarálnum og veiðin hafi gengið þokkalega. „Þetta mjatlaðist bara ágætlega,“ segir Steinþórr á vef Síldarvinnslunnar. Gullver hélt á ný til veiða á miðvikudaginn.