Slippurinn Akureyri kynnti á dögunum starfsemi sína, þjónustu og framleiðslu, á Seafood Processing Global sýningunni í Barcelona. Sýningin er alþjóðleg og er vettvangur alls hins besta og framsæknasta í heiminum sem sjávarútvegsfyrirtæki og aðilar í greininni hafa upp á að bjóða.

Fjölmargir aðilar heimsóttu bás Slippsins og sýndu mikinn áhuga á vörum og þjónustu fyrirtækisins, sem spannar vítt svið fyrir skipaþjónustu, vinnslubúnað og fiskeldi, að sögn Hilmars Guðmundssonar, sölu- og markaðsstjóra Slippsins.

Sæljónið sem er blæðingar- og þvottalausn frá Slippnum vakti verðskuldaða athygli á sýningunni en það tryggir blóðtæmingu eins og best verður á kosið og framúrskarandi aflameðferð.

Sæljónið er blæðingar- og þvottalausn frá Slippnum sem vakti mikla athygli í Barcelona.

Vörulína Slippsins hefur stækkað verulega undafarið og ber þar helst að nefna heildarlausnir í saltfiskvinnslu, hrognavinnslu, sjálfvirkum fiskikerakerfum og í vigtun á afla svo fátt eitt sé nefnt.

„Við fengum kærkomið tækifæri til að hitta núverandi og væntanlega viðskiptavini og skiptast á skoðunum og hugmyndum. Mikinn áhuga var að finna frá innlendum og erlendum útgerðum á vörum okkar og þjónustu en Slippurinn byggir á sterkum grunni og er afar vel staðsettur í miðju Norður-Atlantshafinu. Við erum með stór og spennandi áform um að vaxa innan greinarinnar og framtíðin er sannarlega björt,“ segir Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins.

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins.