Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 28,5 milljörðum króna í apríl samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum um vöruskipti í mánuðinum, sem Hagstofan birti í gærmorgun. Það er rétt rúmlega 2% aukning í krónum talið miðað við apríl í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var tæplega 1% hærra nú í apríl en í sama mánuði í fyrra, er aukningin mæld í erlendri mynt á svipuðu róli, eða rúmlega 1%. Frá þessu segir á Radarnum, vefriti Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Veruleg aukning í fersku

Eins og alla jafna er þróunin nokkuð mismunandi á milli einstaka afurðaflokka. Veruleg aukning er á útflutningsverðmæti ferskra afurða og svo saltaðra og þurrkaðra afurða. Þannig nam útflutningsverðmæti ferskra afurða 7,7 milljörðum króna í apríl og jókst um tæp 38% á milli ára á föstu gengi. Ferskar afurðir voru þar með um 27% af útflutningsverðmæti sjávarafurða í heild í mánuðinum, en það hlutfall hefur aldrei verið svo hátt í apríl. Útflutningsverðmæti saltaðra og þurrkaðra afurða nam 5,1 milljarði króna í apríl og jókst um 27% á milli ára á sama kvarða. Þá var rúmlega 5% aukning í útflutningsverðmæti „annarra sjávarafurða“, en þar undir teljast meðal annars loðnuhrogn. Þar sem um fyrstu bráðabirgðatölur Hagstofunnar ræðir í apríl liggja ekki fyrir upplýsingar um verðmæti niður á einstaka fisktegundir í mánuðinum. Gera má þó ráð fyrir að nokkur útflutningur sé á loðnuhrognum í apríl frá síðustu loðnuvertíð, líkt og verið hefur undanfarna mánuði.

Samdráttur í öðrum afurðaflokkum

Útflutningsverðmæti allra annarra afurðaflokka dróst saman á milli ára í apríl. Útflutningsverðmæti heilfrysts fisks dróst saman um 35% á milli ára á föstu gengi. Þann samdrátt má vafalaust að stærstum hluta rekja til loðnubrests, enda var þó nokkur útflutningur á heilfrystri loðnu í apríl í fyrra. Af öðrum afurðaflokkum má nefna að nokkur samdráttur var í útflutningsverðmæti frystra flaka (-11%), fiskimjöls (-8%) og lýsis (-10%). Mestur var þó samdrátturinn í útflutningsverðmæti rækju, en hann nam um 61% á föstu gengi.

Lítilsháttar samdráttur á fyrsta ársþriðjungi

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í tæpa 111 milljarða króna. Það er rétt rúmlega 3% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra á föstu gengi. Vart þarf nefna að þennan samdrátt má alfarið skrifa á loðnubrest. Það endurspeglast ágætlega í þeim mikla samdrætti sem er í útflutningsverðmæti fiskimjöls (40%) og heilfrysts fisks (33%) á milli ára, en í báðum flokkum voru loðnuafurðir, þ.e. loðnumjöl og heilfryst loðna, fyrirferðarmiklar í fyrra.

Af öðrum afurðaflokkum má nefna að dágóð aukning er í útflutningsverðmæti lýsis (16%) og ferskra afurða (14%) á fyrstu fjórum mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í þeim tilvikum hafa verðmætin í raun aldrei verið meiri á fyrsta ársþriðjungi og nú í ár. Minni breyting var á útflutningsverðmæti annarra afurðaflokka á milli ára, eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.