Fyrir nokkru var tekin ákvörðun um að ráðinn yrði aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar. Mun aðstoðarmaðurinn starfa við hlið Gunnþórs B. Ingvasonar forstjóra. Þegar hefur verið gengið frá ráðningu í starfið og mun Andrew Wissler hefja störf 1. júní nk., að því er segir frá á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Andrew hefur verið fjármálastjóri Vísis hf. í Grindavík frá árinu 2015 og þekkir því vel íslenskan sjávarútveg en eins og kunnugt er festi Síldarvinnslan kaup á Vísi á síðasta ári.

Í Hvíta húsinu

„Æviferill minn er kannski flóknari en hjá mörgum öðrum. Ég er nefnilega sonur hershöfðingja í bandaríska landgönguliðinu og vegna starfa hans þurfti fjölskyldan oft að flytja búferlum og venjulega var búið á hverjum stað í stuttan tíma. Ég er fæddur í Dayton í Ohio 5. október árið 1983 en fjölskyldan flutti til San Diego í Kaliforníu nánast strax eftir að ég kom í heiminn. Í San Diego bjuggum við í þrjú ár. Frá San Diego var flutt í herstöð sem nefnist Camp Pendleton en hún er suður af Los Angeles. Þar var búið í þrjú og hálft ár. Síðan lá leiðin til Virginia og sest að í Quantico og dvalið þar um eins árs skeið. Þá var röðin komin að höfuðborginni Washington D.C. Þar starfaði pabbi sem aðstoðarmaður forseta Bandaríkjanna á vegum hersins og var Hvíta húsið vinnustaður hans. Óneitanlega var það svolítið skrítið að heimsækja pabba í vinnuna á þessum tíma. Pabbi starfaði í Hvíta húsinu í tvö ár, fyrst með George Bush eldri og síðan með Bill Clinton. Þegar störfum í Hvíta húsinu lauk flutti fjölskyldan til Okinawa í Japan. Þar var búið á herstöð í þrjú ár. Það var afar fróðlegt að kynnast japönsku samfélagi og þar ríkti meira frelsi til að fara um en annars staðar þar sem búið var á herstöðvum. Frá Japan var flutt til Camp Lejeune í Norður-Karólínu og þar var ég í efstu bekkjum grunnskóla. Þá var aftur flutt og búið í nágrenni höfuðborgarinnar en pabbi starfaði þá í höfuðstöðvum hersins í Pentagon. Ég gekk einmitt í menntaskóla á meðan við bjuggum þarna,“ segir Andrew Wissler.

Wissler- fjölskyldan að spjalla við Bill Clinton forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu á þeim tíma þegar faðir Andrews starfaði þar. Andrew er fyrir miðri mynd með rautt bindi.
Wissler- fjölskyldan að spjalla við Bill Clinton forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu á þeim tíma þegar faðir Andrews starfaði þar. Andrew er fyrir miðri mynd með rautt bindi.

Tengsl við herinn sterk

„Það hafði bæði sína kosti og galla að búa á mörgum stöðum. Auðvitað hafði hver staður sín einkenni og lífið var býsna fjölbreytt en á móti kom að ég kynntist nánast engum jafnöldrum náið á æskuárunum. Ég á til dæmis enga nána æskuvini eins og margir eiga. Tengslin innan fjölskyldunnar urðu hins vegar afar sterk.

-Nei, ég ákvað að leggja áherslu á annað. Tengslin við herinn eru afar sterk í minni fjölskyldu. Afi minn var hermaður og eins er bróðir minn í hernum. Afi barðist í síðari heimsstyrjöldinni og einnig í Kóreustríðinu og Víetnam."

Tengdasonur Péturs Hafsteins

„Ég flutti til St. Paul, borgar sem er samvaxin Minneapolis, og hóf þar háskólanám í hagfræði. Í háskólanum naut ég mín vel og auk þess að stunda námið var ég á fullu í fótbolta. Í háskólanum kynntist ég íslenskri stúlku sem þar var í sama námi og spilaði einnig fótbolta. Við fórum fljótlega að vera saman. Þetta er Erla Ósk Pétursdóttir sem er dóttir Péturs Hafsteins Pálssonar framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis í Grindavík. Staðreyndin er sú að ég vissi ekkert um Ísland áður en ég kynntist Erlu. Ég hafði þó heyrt landsins getið í kvikmyndinni Mighty Ducks sem var grínmynd og fjallaði um íslenskt íshokkílið. Ég kom í fyrsta sinn til Íslands árið 2005 og þá kom mér margt á óvart eins og til dæmis hinar björtu sumarnætur.

Að loknu háskólanáminu vann ég í tvö ár í fjárfestingabanka í Minneapolis. Vísir hafði fjárfest í fyrirtæki í St. John‘s í Nýfundnalandi og að því kom að Erla flutti þangað til að starfa hjá þessu fyrirtæki. Hún var ein í St. John‘s í eitt ár en síðan fylgdi ég á eftir þangað."

Fram að jólum að læra íslensku

„Haustið 2008 kom hrunið og allt fór á hvolf. Í janúar 2009 fluttum við Erla til Íslands. Hún hóf störf hjá Vísi en ég byrjaði á að starfa hjá Seafood Union, sölufélagi í eigu Vísis. Í upphafi settumst við að í Reykjavík en árið 2011 var ákveðið að flytja skrifstofu Seafood Union til Grindavíkur og þá fluttum við þangað. Í Grindavík höfum við búið síðan og Grindavík er orðinn sá staður sem ég hef lengst átt heima á. Nú eigum við Erla orðið þrjá stráka á aldrinum sjö til tólf ára þannig að fjölskyldan hefur heldur betur stækkað.

Andrew og Erla Ósk með synina þrjá. Þeir eru Jón Pétur, 12 ára, Róbert Ari, 10 ára, og Tómas Páll, 7 ára.
Andrew og Erla Ósk með synina þrjá. Þeir eru Jón Pétur, 12 ára, Róbert Ari, 10 ára, og Tómas Páll, 7 ára.

Auðvitað var það dálítið átak að aðlagast íslensku samfélagi en mér fannst fljótt lífstíll Íslendinga frábær. Íslendingar eru líka meira sjálfbjarga en íbúar milljónasamfélaga því sérhæfing er ekki eins mikil. Íslendingurinn bjargar sér ef eitthvað kemur upp á en leitar ekki strax aðstoðar sérfræðinga.

Auðvitað var átak fyrir mig að læra íslensku. Helsta vandamálið var að Íslendingar vildu gjarnan tala við mig á ensku. Afi og amma Erlu voru ekki sterk í enskunni og vildu geta rætt við mig og það hvatti mig til að ná einhverjum tökum á tungumálinu. Afi Erlu spurði mig fljótlega hvenær ég ætlaði að fara að tala íslensku og ég bað hann um að gefa mér tvö ár. Þá sagði hann „ég skal gefa þér tíma fram að jólum.“ Þetta hvatti mig ótrúlega mikið. Þegar Erla varð ólétt af elsta stráknum okkar ákvað ég líka að nú yrði ég að leggja áherslu á íslenskuna. Ég varð að geta talað við barnið mitt.“

Hvernig líst þér á nýja starfið?

„Mér líst vel á það. Auðvitað er áskorun að taka við þessu starfi en ég hlakka svo sannarlega til. Það verður gaman að fást við krefjandi verkefni með góðu fólki. Ég verð með aðsetur í Grindavík en ég mun án efa heimsækja allar starfsstöðvar Síldarvinnslunnar með reglubundnum hætti. Það verður fróðlegt og spennandi að kynnast betur þessu öfluga fyrirtæki og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess.