Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði skilaði methagnaði á síðasta ári og var það langbesta rekstrarár í sögu fyrirtækisins. Þetta kom fram á aðalfundi Loðnuvinnslunnar sem haldinn var nýlega.

Hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta árið 2022 var 3.483 milljarðar króna á móti 1.247 milljörðum árið 2021. Tekjurnar voru 18.180 milljarðar sem er 45% aukning frá fyrra ári.

Tekjur að frádregnum eigin afla voru 14.039 milljarðar.

Veltufé frá rekstri var 4.502 milljarðar á móti 1.572 milljörðum árið 2021.

Eigið fé félagsins í árslok 2022 14.895 milljarðar sem er 54% af niðurstöðu efnahagsreiknings.

Stærsti hluthafi LVF er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 83% eignarhlut. Á aðalfundi Loðnuvinnslunnar var ákveðið að greiða 20% arð til hluthafa sem gera 140 milljónir.