Helga María RE, ísfisktogari Brims, er komin aftur á veiðar út af Vestfjörðum eftir nokkra daga í Reykjavíkurhöfn, en þangað kom skipið á mánudag eftir velheppnaða veiðiferð á Vestfjarðamið.

Brim hf. segir frá því á vef sínum að í þeirri veiðiferð hafi stýristjakkur reyndar brotnað, sem skemmdi sjálfstýringuna, en nýr varahlutur hafi fengist á Ísafirði þannig að veiðiferðin tafðist aðeins um 20 tíma.

,,Við fórum beint norður á Halamið og hófum veiðar þar. Yfirleitt er stór og góður karfi á Halanum á þessum árstíma og það brást ekki núna. Annars var töluvert um ufsa. Það má segja að veiðin hafi staðið sem hæst þegar stýristjakkurinn brotnaði og því var ekki um annað að ræða en að handstýra togaranum til Ísafjarðar,” segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri, en hann er ekki frá því að hann hafi verið betri í handstýringu hér áður fyrr.

,,Efir viðgerðina fórum við beint aftur á Halann. Svo lá leiðin suður á Látragrunn. Þar var mjög góður þorskur en einnig töluvert af ýsu. Þegar ýsuaflinn fór að verða of mikill þá brugðum við á það ráð að fara norður í grunnkantinn út af Patreksfirði. Þar var töluvert af þorski en við fengum einnig dálítið af kola,” segir Heimir en hann upplýsir að heildaraflinn í veiðiferðinni hafi verið um 165 tonn af fiski upp úr sjó.