Bæjarstjóri Grindavíkur segir ríkan vilja innan stjórnkerfis sveitarfélagsins til að lagfæra sögulega mikilvægar innsiglingarvörður bæjarins. Þessi mikilvægu kennileiti Grindavíkurbæjar hafa látið verulega á sjá á undanförnum árum, ekki síst vegna tíðra jarðhræringa.

„Það hefur ekki farið fram hjá heimamönnum hversu illa er komið fyrir innsiglingarvörðunum vegna jarðsjálftanna. Ríkur vilji er til þess í stjórnkerfinu að láta lagfæra vörðurnar og stefnt er að úrbótum,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, í skriflegu svari við fyrirspurn Fiskifrétta. Spurður um hvort rætt hafi verið um hvenær ráðist yrði í endurbætur segir Fannar það ekki ljóst ennþá.

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Ekki hefur verið ákveðið hvenær hafist verður handa en ljóst er að vanda þarf til verka,“ segir Fannar.

Eins og Fiskifréttir fjölluðu um nýverið þá var málinu hreift á samfélagsmiðlum, en Jón Steinar Sæmundsson, verkstjóri og ljósmyndari, vakti athygli sveitunga sína. Umræddar innsiglingarvörður eru ekki aðeins merkar minjar um útgerðarsögu byggðalagsins heldur setja þær sterkan svip á hafnarsvæðið í Grindavík. Þær minna á stórmerkilega sögu uppbyggingar Grindavíkur.

Ýttu úr vör

Aðstæður Grindvíkinga til sjósóknar fram til síðari heimsstyrjaldar afar erfiðar. Fram til þess tíma ýttu sjómenn bátum sínum á sjó og lentu í vörum við heimkomu aftur. Fylgdi þá oft ein vör sem gekk inn í ströndina hverju lögbýli. Þarf vart að taka fram hversu bágar þessar aðstæður voru til sjósóknar þó ekki sé fjölyrt um hættuna sem fylgdi.

Hafnarbætur voru gerðar á fyrstu áratugum 20. aldar en árið 1938 var sú hugmynd fyrst nefnd við stjórnvöld að gera varanlega höfn þar sem allir bátar ættu öruggt lægi í öllum veðrum. Var þá litið til Hópsins, lónsins sem nú myndar Grindavíkurhöfn.

Hugmyndin fólst í því að athugað væri með að grafa skurð í gegnum grjót og malarrif sem lokaði Hópinu. Aðeins ári seinna hófust framkvæmdir við að opna Rifsósinn. Handverkfæri voru notuð til að losa grjót og hjólbörur til að flytja efnið burt. Eru til ljósmyndir þar sem menn stóðu í sjónum við moksturinn og má rétt ímynda sér um hversu erfitt verk var að ræða. Í september 1939 búið að gera 10 metra breiða rás í gegnum eiðið og Hópið nýttist til að geyma báta á milli róðra eftir að búið var að afferma þá og var um byltingu að ræða fyrir sjómenn.

Á upplýsingaskilti segir að „sundvörður við Hóp voru hlaðnar um þetta leyti.“

Í fyrstu voru vörðurnar einfaldar og var komið fyrir siglutrjám á vörðunum og á þeim voru innsiglingarmerki. Í vefsíðunni Ferlir er fjallað um vörðurnar segir frá því að steypa var sett á þær og þær gulmálaðar sem mun hafa verið gert 1947.

„Stuttu síðar voru reistir staurar við vörðurnar og á þá sett ljós; grænt, hvítt og grænt. Gáfu þau sæfarendum innsiglingarstefnuna til kynna á nóttu sem degi. Síðar voru reist járnmöstur í þeirra stað með viðeigandi leiðbeiningarljósum fyrir sæfarendur,“ segir þar.

Á upplýsingaskiltinu við aðra vörðuna segir svo jafnframt að byggingar- og framkvæmdarsaga Grindavíkurhafnar sé ævintýri líkust. Frá árinu 1939 hefur hver stórframkvæmdin rekið aðra, og má segja að Grindvíkingar hafi farið frá hafnleysu til þess að eiga eina bestu höfn landsins, en má bæta við að fyrir þá sem ekki þekkja til er innsiglingin þó varasöm í vondum veðrum og miklum sjógangi.

Hugsanlegt samstarf

Fannar bæjarstjóri segir að líklega hefði Grindavíkurbær forgöngu við endurbætur hinna sögulegu minja en útilokar ekki að fleiri aðilar gætu komið að málum. Bærinn gæti ef til vill „fengið til liðs við aðra aðila, svo sem Minjastofnun, Vegagerðina og einhver fyrirtæki.“