Eitt stærsta viðgerðarverkefni í sögu Landsnets, viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3, mun hefjast um næstu mánaðamót, að því er fram kemur á heimasíðu Landsnets.

Undirbúningur fyrir viðgerðina hefur gengið vel. Búið er að kaupa 3 km langan streng og tengibúnað og samið hefur verið við danskan verktaka, JD Contractor A/S,​ sem þekkir vel til aðstæðna á Íslandi. Fyrirtækið kom m.a. að viðgerð á Vestmannaeyjastreng 2 árið 2008 og hefur lagt vatnslagnir til Eyja. Notaður verður prammi sem er sérútbúinn til strenglagna og -viðgerða. Íslenskir verktakar munu koma að undirbúningsvinnu á sjó og vinnu í landi.

Strengurinn bilaði 31. janúar og mælingar sýndu að bilunarstaður er um 5 km frá tengivirkinu Rimakoti við Landeyjasand, þ.e. um 1 km frá landi. Aðstæður á bilunarstað eru krefjandi og erfitt er að koma viðgerðarskipi að staðnum.​ Bilunin er rétt við sandrif sem er á mikilli hreyfingu til og frá ströndinni​. Talsverður straumur er meðfram ströndinni og mikill öldugangur þar sem bilunin er þannig að allar aðgerðir þar eru veruleg áskorun.

Viðgerðin taki um tíu daga við bestu aðstæður

Eftir talsverða yfirlegu og mat á áhættu við viðgerðina var ákveðið að fara þá leið að fleyta inn nýjum streng og tengja við þann gamla um 2 km frá landi. Svipuð aðferð og var notuð þegar strengurinn var lagður árið 2013.

Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets segir að það þurfi margt að falla með Landsneti á meðan á viðgerð stendur.

„Straumþungi er meðfram ströndinni og mikill öldugangur og munu aðstæður til vinnu ráðast mikið til af vindátt og öldu. Viðgerðin hefst á því að skorið er á gamla strenginn um 2 km frá fjöruborði, nýjum streng fleytt í land og hann dreginn upp í fjöruna þar sem hann verður tengdur við landstrenginn sem fyrir er. Þá verður núverandi streng lyft upp í viðgerðarskip þar sem hann verður tengdur við nýja strenginn. Sú vinna tekur hátt í 48 klukkustundir og þarf ölduhæð að vera minni en 1,1 metri á meðan á henni stendur. Að því loknu er honum slakað aftur niður á hafsbotn. Við reiknum með að við bestu aðstæður taki viðgerðin um tíu daga.“

Vestmannaeyjastrengur 1 og samtengdir Vestmannaeyjastrengir 2 og 3 hafa séð Vestmannaeyjum fyrir rafmagni á meðan strengurinn hefur verið bilaður og hefur Landsnet ekki þurft að keyra varaafl um nokkurt skeið. Enn eru fimm varaaflsvélar Landsnets í Eyjum sem geta framleitt 6 MW.