Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að, ef samningar nást við hagsmunaaðila, sé hægt að úthluta 500 þorskígildistonnum af aflamarki stofnunarinnar til Strandabyggðar á yfirstandandi fiskveiðiári.
Þetta kemur fram í pistli Þorgeirs Pállsonar sveitarstjóra á vef Strandabyggðar.
„Þarna eru tækifæri sem við verðum að reyna að nýta. Hingað komu tveir fulltrúar Byggðastofnunar og áttu fundi með útgerðaraðilum og sjómönnum á Hólmavík. Sértækur byggðakvóti er skilyrtur á þann hátt að honum ber að landa til vinnslu og verður mjög áhugavert að sjá hvort forsendur fyrir fiskvinnslu á Hólmavík séu til staðar eða ekki,“ segir Þorgeir í pistlinum.
Um tuttugu manns misstu vinnuna á Hólmavík í sumar þegar rækjuvinnslu Hólmadrangs var lokað vegna viðvarandi halla á rekstrinum.
Sterkar Strandir halda áfram
Sveitarstjórinn ræðir einnig íbúafund sem taldinn var á miðvikudaginn í síðustu viku í tengslum við verkefnið Sterkar Strandir.
„Á íbúafundinum, var staðfest að stjórn Byggðastofnunar samþykkti áframhaldandi aðild Strandabyggðar að verkefninu og mun verkefnið Sterkar Strandir því halda áfram út árið 2024. Við sendum stjórn Byggðastofnunar kærar þakkir fyrir þessa ákvörðun,“ skrifar Þorgeir sem segir þetta mikil tíðindi fyrir íbúa Strandabyggðar.
Fiskeldi og þjóðgarður
„Það er rétt að hvetja íbúa Strandabyggðar nú til að koma fram með sínar viðskiptahugmyndir, á hvaða stigi sem þær eru, leita til verkefnastjóra Sterkra Stranda,“ skrifar Þorgeir. Á íbúafundinum hafi líka komið fram að augljósir vaxtarbroddar í atvinnulífi á Ströndum séu tengdir ferðaþjónustu, fiskeldi og jafnvel uppbyggingu þjóðgarðs.
„Fjárfestingar í atvinnulífinu hafa gjarnan margföldunaráhrif í för með sér og það eru þessu margföldunaráhrif sem við verðum að nýta. Við þurfum að byggja upp þekkingu og reynslu innan þeirra atvinnugreina sem fela í sér tækifæri framtíðarinnar. Sterkar Strandir geta hjálpað okkur til þess,“ segir Þorgeir Pálsson ástrandabyggd.is.