Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sem staðfestir umhverfismatsskýrslu íslenska landeldisfyrirtækisins GeoSalmo sem fjallar um áætlanir fyrirtækisins um að reisa allt að 24.000 tonna laxeldisstöð vestan við Þorlákshöfn. Álit Skipulagsstofnunar er mikilvægt skref í undirbúningi fyrirtækisins í því stóra verkefni, en vinna við umhverfismat hefur staðið yfir í um tvö ár.

Norskt fyrirtæki hannar og byggir stöðina

Fyrirtækið leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. Umfjöllun í áliti Skipulagsstofnunar er í samræmi við þær áherslur fyrirtækisins. Í fyrsta áfanga framkvæmdarinnar áformar GeoSalmo að reisa eldisstöð sem getur framleitt allt að 7.500 tonn af laxi á ári. GeoSalmo hefur nú þegar samið við norska fyrirtækið Artec Aqua um hönnun og uppbyggingu stöðvarinnar.

Í áliti Skipulagsstofnunar og matsskýrslu félagsins eru umhverfisþættir er snúa að mannvirkjagerð, vatnsauðlindum og fráveitu meðal umfjöllunarefna. GeoSalmo leggur áherslu á lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrga nýtingu auðlinda, sér í lagi vatnsauðlindar, og staðfestir álitið fyrirhugaðar aðgerðir GeoSalmo í þeim efnum.

Álit Skipulagsstofnunar er forsenda annarra leyfisumsókna sem nauðsynlegar eru fyrir uppbyggingu starfseminnar. Fyrirtækið leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við leyfis- og eftirlitsstofnanir á vegum hins opinbera.

Stærsti áfanginn

„Það er fagnaðarefni að fá álit Skipulagsstofnunar sem staðfestir þá vönduðu vinnu sem liggur að baki umhverfismatinu. Þetta markar lok tveggja ára verkefnis og er stærsti einstaki áfanginn í undirbúningi félagsins fyrir uppbyggingu sína. Með þessari niðurstöðu styttist í að félagið geti hafið framkvæmdir og opnast þannig nýr kafli í sögu félagsins,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo.