Stéttarfélög sjómanna og SFS undirrituðu seint í gærkvöldi nýjan kjarasamning til 10 ára. Er þar um að ræða Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna. Í frétt frá SFS segir að megininntak samninganna lúti að betri kjörum og réttindum til framtíðar, auk hnitmiðaðra aðgerða til að auka traust viðskipti á verðmætum úr sjó. Greiðslur í lífeyrissjóð og kauptrygging hækka í samræmi við samninga á almennum vinnumarkaði, auk þess sem áhersla er lögð á aukið gagnsæi og upplýsingagjöf vegna fiskverðsmála.

Aukin verðmætasköpun í hlutaskiptakerfi

Í frétt SFS segir að hlutaskiptakerfið hafi sannanlega tryggt aukna verðmætasköpun með reynslumiklum áhöfnum skipa, góðu skipulagi veiða og áherslu á gæði. Íslenskur fiskur hafi þannig orðið að eftirsóttri hágæðavöru í alþjóðlegri samkeppni. Þennan árangur sé mikilvægt að verja. Með langtímasamningi til 10 ára sé samstarf sjómanna og sjávarútvegsfyrirtækja styrkt og frekari grundvöllur lagður að því að viðhalda eftirsóknarverðum og vel launuðum störfum á sjó. Með stofnun sérstakrar öryggisnefndar verði jafnframt settur aukinn þungi í öryggismál og heilsu sjómanna.

„Þrátt fyrir nokkuð langan aðdraganda að undirritun nýs kjarasamnings, þá tel ég að samtalið hafi fært okkur aukinn skilning á þeim álitamálum sem við stóðum frammi fyrir. Þegar allt kemur til alls, þá fara hagsmunir sjómanna og sjávarútvegsfyrirtækja saman. Verkefnið snýst ekki aðeins um að störf á sjó séu eftirsóknarverð, laun séu góð og að verðmætum sé rétt skipt, þótt þetta allt sé að sjálfsögðu mjög mikilvægt. Við viljum ekki síður að sjómönnum almennt líði vel, andlega og líkamlega, að gott jafnvægi sé á milli vinnu og einkalífs og að fjárhagsleg afkoma við starfslok sé treyst. Við settum því mikla áherslu á þessa þætti. Nú verðum við einfaldlega að vona að við höfum staðið undir væntingum þeirra sem fólu okkur ábyrgð á gerð þessara kjarasamninga og bíða afstöðu þeirra,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.

Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna og Fé­lag skip­stjórn­ar­manna hafa einnig náð samn­ing­um.

Samn­ing­ar sjó­manna höfðu verið laus­ir frá ár­inu 2019.