Íslenska markaðsstofan Ceedr vann nýlega að markaðsherferð fyrir samtök útgerða um botnfiskveiði í Kanada, Atlantic Groundfish Council. Í henni var lagt upp með að neytendur í Svíþjóð veldu kanadíska fiskinn yellowtail flounder sem valkost við sænska rauðsprettu sem hefur verið ofveidd í Svíþjóð. Markaðsherferðin skilaði kanadísku útgerðinni áttföldum vexti í sölu á þessari tegund í Svíþjóð.

Gulstirtla eða gulspretta

Yellowtail flounder hefur verið nefnd gulstirtla á íslensku og svipar mjög til rauðsprettu. Markaðsherferð Ceedr beindist fyrst og fremst að neytendum og skilaði góðum árangri í aukinni athygli og kaupum neytenda á þessari kanadísku fisktegund. Ekki síður náðist góður árangur gagnvart viðskiptum við fyrirtæki sem leiddi til áttfalds vaxtar í sölu á gulstirtlu. Þá náðist að vekja áhuga hjá stærstu mat vöruverslunarkeðju Svíþjóðar, ICA, á vörunni. Kanadísk gulstirtla er því nú til sölu í verslunum keðjunnar í Svíþjóð. Verslanir ICA eru 1.300 talsins og markaðshlutdeild keðjunnar er um 33% á matvörumarkaði í Svíþjóð.

Gulsprettuflök féllu vel í geð Svía.
Gulsprettuflök féllu vel í geð Svía.

Talað til matgæðinga og áhrifavalda

Ceedr notaðist við markvissa blöndu af Google Ads og Meta, með það að markmiði að ná til matgæðinga í helstu borgum Svíþjóðar, þ.e. Stokkhólmi, Malmö, Gautaborg og Linköping. Markmið herferðarinnar var að koma á framfæri skilaboðum sem höfðu áhrif á neytendur og í framhaldinu dreifingaraðila og endursöluaðila fisksins.

Árangur herferðarinnar byggðist meðal annars á áhrifamiklu efni tengdu matreiðslumönnum, samstarfi við áhrifavalda og markvissri framsetningu á sögu vörunnar sem náði vel til skilgreindra markhópa. Þessi nálgun jók ekki einungis sýnileika vörunnar heldur undirstrikaði einnig hversu mikil áhrif eftirspurn neytenda hefur á ákvörðun smásala um hvaða vörur fá hillupláss í verslunum. Um var að ræða stefnumarkandi breytingu á markaðsnálgun sem sögð er hafa sett ný viðmið í greininni og sýnt hvernig neytenda miðuð herferð getur keyrt vöxt í heildsölu og umbreytt markaðsstöðu.

„Markmið okkar með nýrri nálgun var að búa til eftirspurn hjá markhópnum með því að vekja athygli á gæðum gulstirtlunnar eða gulsprettunnar eins og við höfum kallað hana, og ábyrga veiði hennar í gegnum stafræna miðla og eftirtektarvert efni sem hitti í mark. Árangurinn var framúrskrandi.,” segir Hreggviður Magnússon framkvæmdastjóri Ceedr.