Kælismiðjan Frost lauk í lok október við uppsetningu og frágang á frystikerfi í bolfiskvinnslu sjávarútvegsfyrirtækisins Þorbjörns hf. í Grindavík. Þetta kemur fram í tilkynningum frá fyrirtækjunum.

„Með nýja kerfinu segir Jóhann Vignir Gunnarsson, sem hefur framleiðslu- og markaðsmál Þorbjörns hf. á sinni könnu, að opnist ýmsir nýir möguleikar fyrir fyrirtækið í framleiðslu og markaðssetningu sjávarafurða,“ segir í tilkynningunni.

Rakið er að síðastliðinn vetur hafi Þorbjörn hf. falið Frosti að hanna og setja upp nýtt frystikerfi í landvinnslu fyrirtækisins í Grindavík. Í endaðan mars hafi Frost farið í þarfa- og stærðargreiningu á nýju frystikerfi og í framhaldinu hafi það verið hannað. Rafhönnun hafi einnig verið í höndum Frosts.

Skemmtilegt verkefni

Í sumar sem leið var síðan byggt nýtt hús við hlið vinnsluhúss Þorbjörns fyrir vélasal og í hann hefur frystibúnaðinum verið komið fyrir.

„Verkinu er lokið og búið er að ræsa kerfið og prófa allan búnað. Gamla kerfið var keyrt á ammoníaki og það sama gildir um þetta nýja kerfi. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og ég tel að tekist hafi að vinna þetta hratt og örugglega. Ég er mjög ánægður með útkomuna,“ er meðal annars haft eftir Bjartmari Agli Harðarsyni, verkefnastjóra hjá Frost.

Gamla kerfið orðið þungt í viðhaldi

Jóhann Vignir Gunnarsson hjá Þorbirni hf. segir gamla frystikerfið hafa verið sett upp á sjöunda áratug síðustu aldar. Það hafi verið þungt í viðhaldi og erfitt að fá varahluti.

„Nýlega keyptum við lausfrysti og bættum við kerfið en það var alveg ljóst að við þyrftum að fara í gagngerar endurbætur því það uppfyllti ekki nýjustu reglugerðir,“ er haft eftir Jóhanni. Niðurstaðan hafi verið að setja upp nýtt kerfi.

„Við endurbættum frystiklefann, klæddum hann með yleiningum og tókum hann í gegn að innan. Á heildina litið erum við komnir með mun betra frystikerfi en áður sem er á allan hátt auðveldara að halda við og það keyrir á mun hagkvæmari hátt en gamla kerfið,“ er áfram haft eftir Jóhanni.

Opnar nýja möguleika fyrir Þorbjörn

Þá segir Jóhann að eftirlit verði mun markvissara en áður. Frost geti fylgst með virkni kerfisins frá degi til dags í gegnum netið. Lausfrystir sem hafi verið tengdur við nýja kerfið auki möguleika Þorbjörns í framleiðslunni verulega.

„Meðal annars höfum við nú möguleika á því að frysta léttsöltuð þorskflök og einnig að lausfrysta hefðbundin flök inn á Ameríku- og Evrópumarkað. Þá getum við lausfryst þorskhrogn sem við höfum áður sent fersk frá okkur. Við höfum eingöngu verið í þorskvinnslu en með þessum breytingum horfum við til þess að geta einnig meðal annars unnið ufsa, ýsu og karfa. Við erum mjög ánægðir með útkomuna og samstarfið við Frost,“ segir Jóhann í tilkynningunni.