Í bréfi til starfsmanna sem birt er á heimasíðu Samherja segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri fyrirtækisins, að einstaklingur hafi lýst verkinu á hendur sér og segir það hluta af listgjörningi.

Bréfið er svohljóðandi:

Eins og ykkur er eflaust kunnugt um, hefur falsfréttum í nafni Samherja verið dreift að undanförnu. Sett var upp heimsíða í Bretlandi, í nafni og með myndmerki félagsins og fréttunum dreift þaðan.

Nú hefur einstaklingur lýst verkinu á hendur sér og segir það hluta af listgjörningi.

Reynt að hafa fé af Samherja

Við hjá Samherja, getum ekki unað misnotkun af þessu tagi. Sú afstaða okkar hefur ekkert með list eða tjáningarfrelsi að gera heldur endurspeglar einungis skýlausan rétt okkar og skyldu til að vernda vörumerki félagsins. En það höfum við byggt upp af kostgæfni á undangengnum fjórum áratugum um allan heim.

Þá er rétt að greina frá því að í þessari misnotkun fólst ekki einungis listrænn tilgangur eins og höfundur heldur fram, því auk þess var reynt að hafa fé af Samherja með því að fela auglýsingastofu birtingu á auglýsingaefni af sama tagi gegn greiðslu frá Samherja.

Samherji mun gera kröfu um að umræddri heimasíðu verði lokað og þessi misnotkun verði ekki látin viðgangast.

Ég tel rétt að láta ykkur vita af þessu.

Bestu kveðjur, Þorsteinn Már.