Upprunalegt útlit og merki Matís var hannað við stofnun fyrirtækisins árið 2007. Nú hefur merkið verið endurnýjað og hyggst Matís um leið og það er kynnt skerpa á skilaboðum sínum og sérstöðu í verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, lýðheilsu og matvælaöryggi í landinu.

„Merkið hefur þjónað okkur vel í gegnum árin, en nú er komið að því endurnýja merkið og fríska upp á ásýnd fyrirtækisins í takt við nýja tíma og skjámiðla. Á sama tíma viljum við nýta tækifærið og skerpa á skilaboðum okkar og sérstöðu í verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, lýðheilsu og matvælaöryggi í landinu.

Dropi er nýtt merki Matís.
Dropi er nýtt merki Matís.

Með nýjustu tækni og vísindum getum við nú gert okkur mat úr því sem áður var óhugsandi. Við veitum fyrirtækjum og stofnunum í matvælaframleiðslu stuðning með þekkingu, rannsóknum og hugviti. Markmið okkar er að framleiðsla neysluvara verði sjálfbærari, hagkvæmari og heilnæmari, auk þess að þróa leiðir til að efla fæðuöryggi í heiminum.

Nýtt tákn Matís er dropi, bætiefni. Við gerum gott betra, lengjum líftíma matvæla og erum bætiefni matvælaframleiðslu. Samskipti við hagaðila eru okkur hjartansmál og getur dropinn einnig táknað talbólu til marks um það.

ENNEMM auglýsingastofa sá um hönnun á nýju útliti Matís.