Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöld og Bergur VE landaði í gærmorgun.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir að afli beggja skipa hafi mest verið þorskur og ýsa.

„Bæði skip voru að veiðum fyrir austan land og var veiðin ágæt þar til brældi á þriðjudagskvöld, en þá var Vestmannaey búin að fylla og Bergur var við það að fylla. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og forvitnaðist um gang veiðanna,“ segir á svn.is þar sem rætt er við skipstjóra beggja skipanna.

Héldu til Eyja undan norðanáttinni

„Veiðin var ágæt þar til veður versnaði á þriðjudagskvöld en þá vorum við að leggja af stað í land,“ er haft eftir Agli Guðna Guðnasyni, skipstjóra á Vestmannaey. Þeir hefðu verið að veiðum á Langabanka, í Berufjarðarál og á Papagrunni og nú veitt 130 tonn á einni viku.

„Fyrst var landað í Neskaupstað og síðan í Eyjum. Veiðin hefur farið fram fyrir austan land og það hefur verið mikil keyrsla. Í þessari viku höfum við einungis verið að veiðum í 98 tíma en verið á siglingu í 65. Ef hefði verið gott veður hefðum við landað aftur í Neskaupstað en norðanáttin gerði það að verkum að ákveðið var að halda til Eyja,” er haft eftir Agli.

Reikna með að fara austur aftur

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hafi verið að veiðum í Berufjarðarál og á Papagrunni og verið við það að fylla er gerði bölvaða brælu á þriðjudagskvöld.

„Það var flúið undan brælunni og vegna veðurs var ákveðið að fara til Eyja. Ég geri ráð fyrir að það verði farið austur aftur því það er enginn fiskur úti fyrir Suðurlandinu um þessar mundir. Við höfum reynt fyrir okkur úti fyrir suðurströndinni en niðurstaðan hefur verið virkilega döpur,” er haft eftir Jóni á vef Síldarvinnslunnar.