Hátt í fjörutíu nemendur í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri hafa á undanförnum dögum heimsótt skip og landvinnslu Samherja. Nemendur auðlindadeildar skólans hafa um langt árabil átt þess kost að skoða og kynnast starfsemi félagsins, sem hluta námsins. Magnús Víðisson brautarstjóri segir afar mikilvægt að öflug sjávarútvegsfyrirtæki séu starfandi í námunda við skólann, sem geri nemendum kleift að kynnast betur sjávarútvegi og haftengdri starfsemi.
Heimasíða Samherja fylgist með er nokkrir nemendur heimsóttu uppsjávarskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri tók á móti hópnum og útskýrði tæknina um borð en Vilhelm Þorsteinsson er eitt tæknivæddasta veiðiskip íslenska flotans. Sömuleiðis kynntu nemendurnir sér starfsemina í fiskvinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri.
Nálægðin við sjávarútveginn mikilvæg
„Þessar heimsóknir tengjast námskeiðinu „Íslenskur sjávarútvegur,“ þar sem nemendurnir fá yfirsýn yfir íslenskan sjávarútveg, söguna og þróun til dagsins í dag bæði til sjós og lands. Þetta er nokkuð yfirgripsmikið námskeið og víða komið við. Verklegur hluti námskeiðsins inniheldur heimsókn í fiskvinnslur og skip ásamt æfingu í flökun og framleiðslu helstu afurða. Við höfum verið í samstarfi við Samherja um langt árabil og nálægðin við sjávarútvegsfyrirtæki er okkur mjög mikilvæg. Við njótum góðs af því að hér á Eyjafjarðarsvæðinu eru starfandi mörg fyrirtæki sem eru í haftengdri starfsemi og teljast framarlega á heimsvísu. Sömuleiðis hagnast atvinnulífið á nálægðinni við skólann, sjávarútvegsfræðingar eru til dæmis nokkuð áberandi hjá Samherja svo ég nefni dæmi. Ég hef fylgt nemendunum í þessar heimsóknir, sem eru afskaplega lærdómsríkar,“ segir Magnús Víðisson.
Nánar má lesa um heimsóknina á heimasíðu Samherja.