Síldarvinnsluskipin hafa hafið kolmunnaveiðar suðaustur af Færeyjum. Heimasíðan ræddi við Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóra á Berki NK, í morgun. „Við erum búnir að taka tvö hol og erum nú að kasta. Þetta byrjar afar vel. Við hífðum í gærkvöldi eftir að hafa dregið í um átta tíma og fengum 420 tonn. Það var aftur híft í morgun eftir að dregið hafði verið í um fimm tíma og þá voru 470 tonn í. Það eru semsagt komin 890 tonn um borð. Veiðisvæðið er suðaustur af Færeyjum, um 70 mílur suðaustur úr Suðurey. Þetta er inni í færeyskri lögsögu en nálægt skosku landhelgislínunni. Hér eru mörg skip að veiðum. Færeyski flotinn er hérna og íslensku skipunum fjölgar ört. Við höfum bara séð tvo Rússa en þeir hafa oft verið fleiri. Það hefur ekki verið hægt að kvarta undan veðrinu. Hér hefur verið blíða frá því við komum. Það verður vart annað sagt en að þetta byrji vel og vonandi verður framhald á þessari veiði,“ segir Hálfdan.

Heimasíðan náði einnig sambandi við Herbert Jónsson stýrimann á Beiti NK. Herbert hafði svipaða sögu að segja og Hálfdan. „Við fengum 460 tonn í gærkvöldi og vorum að dæla 380 tonnum í morgun. Við erum að fara að kasta í þriðja sinn. Þetta byrjar bara vel,“ segir Herbert.

Barði NK kom seinna á miðin en hin skipin tvö og voru Barðamenn enn á fyrsta holi í morgun.