Afli uppsjávarveiðiskipa Síldarvinnslunnar í fyrra var afar góður að því er segir á vef fyrirtækisins.
„Börkur NK veiddi samtals 71.366 tonn, Beitir NK 70.074 tonn, Barði NK 45.510 tonn og Bjarni Ólafsson AK 8.250 tonn. Þess skal getið að Bjarni Ólafsson var einungis að veiðum hluta af loðnuvertíðinni en að öðru leyti var skipið ekki nýtt á árinu. Allar vertíðir skipanna á árinu gengu nánast eins og best var á kosið; loðnuvertíð, síldarvertíðirnar (norsk-íslensk síld og íslensk sumargotssíld), makrílvertíð og kolmunnavertíð,“ segir á svn.is.
Haft er eftir Grétari Erni Sigfinnssyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, að uppsjávarveiðin í fyrra hafi gengið eins og í sögu.
Gat ekki gengið betur
„Það er varla hægt að hugsa sér þetta betra. Börkur og Beitir eru aflahæstu íslensku uppsjávarveiðiskipin og Barði var líka að gera það afar gott. Bjarni Ólafsson kom einungis til aðstoðar í skamman tíma á loðnuvertíðinni. Ég held að til dæmis loðnuveiðin hafi ekki getað gengið betur, það var allt hagstætt og þá ekki síst veðrið. Nýja árið byrjar líka vel. Kolmunnaveiðarnar á gráa svæðinu og í færeysku lögsögunni fara ágætlega af stað en það er gífurlegur fjöldi skipa á miðunum núna,“ segir Grétar.
Þá er þess getið að gamli Börkur, eða Stóri Börkur eins og hann var gjarnan nefndur, hafi fiskað yfir 70.000 tonn á ári á árunum 2000 – 2004. Reyndar hafi afli hans verið yfir 80.000 tonn á árunum 2002 og 2003.