Þau eru af margvíslegu tagi verkefnin hjá Landhelgisgæslunni. Síðastliðinn þriðjudag fékkst áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs til dæmis við það að losa dauðan hval á Stakksfirði sem flækst hafði í botnföstu tógi sem talið er líklegt að sé hluti af kræklingaræktunarbúnaði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um hvalinn fyrr í vikunni.

Tógið sem hvalurinn festi sig í er talinn vera hluti af kræklingaræktunarbúnaði.
Tógið sem hvalurinn festi sig í er talinn vera hluti af kræklingaræktunarbúnaði.

Hræið var orðið uppblásið og gat valdið hættu fyrir sjófarendur því það var í miðri leið milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar. Siglingaleiðin á milli þessara hafna lá í gegnum þetta svæði en síðan var hluta af því úthlutað undir kræklingaeldi.

Gæti flækst í skrúfum

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs var kölluð út og beðin um að halda á staðinn til að losa hvalinn og koma honum út fyrir Stakksfjörð. Áhöfninni gekk vel að losa hræið en í ljós kom að á svæðinu er búnaður, tóg og línur sem hvalir, selir og önnur sjávarspendýr geta hæglega fest í auk þess sem hætta er á að skip og bátar flæki búnaðinn í skrúfuna.

Fýllinn tyllti sér létt á hvalshræið áður en gæslumenn bar að.
Fýllinn tyllti sér létt á hvalshræið áður en gæslumenn bar að.

Búnaðurinn virtist ekki lengur vera í notkun. Þegar áhöfn Baldurs hafði lokið við að losa hvalinn var hann tekinn í tog og haldið með hann út fyrir sjávarfallastrauma og honum sleppt á rek um 15 sjómílum norðvestur af Garðskaga.