Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar fóru nýlega um norður og norðausturland til að safna sýnum í ám og vötnum til rannsókna á líffræðilegum gæðaþáttum, smádýrum og þörungum.

Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að þessir þættir verði notaðir til að meta vistfræðilegt ástand í ám og vötnum á svæðinu í samræmi við vatnaáætlun Íslands 2022–2027.

„Markmið leiðangursins var að safna upplýsingum um lífríki í óröskuðum ám og vötnum og náttúrulegan fjölbreytileika þess,“ segir á hafogvatn.is.

3,5 milljarða króna styrkur frá Evrópusambandinu

Rannsóknin er sögð hluti af stærra verkefni sem fram fari á þessu ári og feli í sér athuganir á eðlisefnafræði, smádýrum (púpuhömum og lirfum) og þörungum á sömu rannsóknarstöðum, auk þess sem fiskrannsóknir verði gerðar á völdum stöðum. Hún sé unnin fyrir Umhverfis- og orkustofnun og sé hún sambærileg við rannsóknir sem gerðar hafi verið á öðrum ferskvatnskerfum á Ísland síðan 2022.

„Þetta verkefni er hluti af stóru verkefni, LIFE Icewater, sem fékk styrk frá Evrópusambandinu til að hraða verkefnum í vatnaáætlun Íslands 2022–2027. Með rannsókninni fæst betri innsýn í náttúrulegan breytileika í ám og vötnum á Íslandi, sem er mikilvægt til að hægt sé að þróa aðferðir til að meta ástand vatns og vatnavistkerfa,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

Á vef Matvælastofnunar kemur fram um umræddur Icewaterstyrkur nemur 3,5 milljörðum króna.