Íslensk sumargotssíld sem Barði NK fékk vestur af landinu er ágæt að sögn yfirverkstjórans í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins.
„Áfram er haldið að vinna síld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Barði NK kom í morgun [í gærmorgun] með 580 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Aflinn fékkst í þremur stuttum holum. Að sögn Odds Einarssonar yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu er um ágæta síld að ræða og er hún heilfryst auk þess sem framleidd eru samflök,“ segir á svn.is.
Þá kemur fram í færslunni, sem er frá í gær, að Vilhelm Þorsteinsson EA væri á austurleið með 1.300 tonn af síld og yrði kominn til Neskaupstaðar áður en vinnslu úr Barða lyki.