Bæjarráð Suðurnesjabæjar sendir hlýjar kveðjur til íbúa Grindavíkur.

„Það er erfitt fyrir alla Íslendinga að verða vitni að þeim miklu náttúruhamförum sem orðið hafa í og við Grindavík. Öflugt og samheldið samfélag í fyrirmyndar sveitarfélagi hefur orðið fyrir miklum áföllum sem setur íbúa Grindavíkur í erfiða stöðu,“ segir bæjaráðið. Íslendingar séu þekktir fyrir öfluga samstöðu þegar áföll hafa dunið yfir og nú muni reyna á samstöðuna og viðbrögð sem aldrei fyrr.

„Hugur okkar er hjá íbúum Grindavíkur og við heitum því að standa með og veita Grindvíkingum alla þá aðstoð sem möguleg er við þessar erfiðu aðstæður. Suðurnesjabær þakkar almannavörnum og öllum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlega framlag við krefjandi aðstæður og er þeim óskað velfarnaðar í þeirra störfum í þágu samfélagsins,“ segir bæjarráðið.

Mikil og margvísleg hætta í Grindavík

Ákveðið var í morgun að fresta vinnu í dag við að koma vatni og rafmagni á húsin í Grindavík af öryggisástæðum.

Að því er segir á vef Grindavíkurbæjar er unnið að kortlagningu á sprungum í og við bæinn.

„Í Grindavík er talin vera mjög mikil hætta á jarðskjálftum, sprungum, hraunflæði, sprunguhreyfingum, gosopnun án fyrirvara og hættulegri gasmengun,“ segir á grindavik.is.