„Allir aðilar vinna hörðum höndum að því að kanna ástand innviða og eru að störfum víða um bæinn að sinna viðgerðum,“ segir í yfirliti á vef Grindavíkurbæjar um stöðuna á innviðum bæjarins eins og hún var í gær.

Unnið hefur verið að því að mynda fráveitulagnir í götum og er sú vinna sögð ganga vel. Þrír hópar séu að störfum með myndavélar.

Mesta tjónið við Austurveg við Grindavíkurkirkju

„Þær lagnir sem hafa verið myndaðar koma ágætlega út. Vesturstofn fráveitukerfisins fór illa í sprungu neðan við Kirkjustíg en viðgerð þar er lokið. Þá hefur verið staðið í smærri viðgerðum víða um bæ. Viðgerð á fráveitulögn við Austurveg er umfangsmikil, vonir standa til að viðgerð þar ljúki í næstu viku. Vinna við mælingar á hæð í brunnum fráveitunnar er hafin. Sú vinna skiptir máli til að fá fullvissu um sjálfrennsli,“ segir á grindavik.is.

Þá segist Grindavíkurbær geta staðfest að fráveitulagnir við Hafnargötu, Ægisgötu og Seljabót séu í lagi og að tilkynnt verði er staðfesting um fleiri götur liggi fyrir.

Staðan á kalda vatninu er almennt sögð vera nokkuð góð. Mesta tjónið á vatnsveitunni sé við Austurveg við Grindavíkurkirkju. Kalt vatn sé á stórum hluta bæjarins og stefnt sé að því að kalt vatn verði komið á allan bæinn strax eftir helgi.

Noti ekki salerni nema fráveitan virki

„Samhliða vinnu við lagnakerfið er unnið í lekaleit á kerfinu. Íbúar eru hvattir til að nota ekki salerni, vaska, uppþvottavélar og svo framvegis. í þeim húsum sem hafa kalt vatn þar til það verður staðfest að fráveitukerfið frá þeirra húsum er í lagi og skili skólpi sína leið til sjávar.

Gatnalýsingin hefur haldið velli en sem komið er, ljós er á staurum en þó nokkrir þeirra eru skakkir.

Fyllingar í sprungur og holur

Heitt vatn og rafmagn er á öllum bænum og stofnleiðir fjarskiptakerfa eru að mestu leyti í lagi.

„Framkvæmdir við það að fylla í sprungur og holur eru hafnar, en þessar framkvæmdir eru mikilvægar til að tryggja öryggi íbúa, starfsmanna fyrirtækja, viðbragðsaðila og annara aðila á ferð sinni um bæinn. Hver og ein sprunga verður gengin, skrásett og fyllt,“ segir áfram í tilkynningunni.

Að endingu segir frá því að settar hafi verið upp öryggisgirðingar í kringum sprunguna frá Salthúsinu að Landsbankanum. Enginn eigi að vera á því svæði nema þeir sem séu við framkvæmdir.

„Mikilvægt er að íbúar og aðrir sem koma til Grindavíkurbæjar ferðist um á götum og gangstéttum og takmarki gangandi umferð sína eins og kostur er. Það er enn hreyfing á jörðinni, sprungur og holur geta opnast fyrirvaralaust,“ segir á grindavik.is.