Starfsemi er að hefjast hjá Þorbirni í Grindavík eftir að heimild til veru í bænum hefur verið aukin. Þetta er haft eftir Jóhanni Gunnarssyni, sem er í framleiðslu og markaðsmálum hjá fyrirtækinu, á mbl.is.
„Við hittumst á planinu hjá Fjarðarkaupum og nú eru fjórir bílar á leiðinni inn í Grindavík. Við ætluðum að ná í rútu en það hafðist ekki,“ er haft eftir Jóhanni á mbl.is.
Þá hefur Vélsmiðja Grindavíkur opnað verslun sína að nýju að sögn Víkurfrétta.