Vegna laxagengdar undir meðallagi hefur Landssamband veiðifélaga sent út áskorun um að stangveiðimenn og veiðifélög takmarki dráp á laxi.
Þetta kemur fram í tilkynningu landssambandsins sem kveðst hafa nokkrar áhyggjur af laxgengd það sem af er sumri.
„Þó enn sé töluvert eftir af göngutíma virðast fyrstu vikur veiðitímabilsins gefa til kynna að laxgengdin verði undir meðallagi. Taka ber fram að slíkt getur breyst snögglega og eru fordæmi fyrir því að smálax skili sér seint, en í talsverðu magni. LV telur þó að veiðifélög ættu að sýna varkárni við nýtingu laxastofna næstu daga og vikur, þar til ljóst verður hvernig laxgengdin þróast,“ segir í tilkynningunni.
Meira viðnám gegn neikvæðum afleiðingum sjókvíaeldis,
Síðan er sem fyrr segir skorað á veiðifélög og veiðimenn að takmarka eins og unnt er dráp á laxi og að auk að takmarka eða banna veiðiaðferðir og búnað sem hindrar að hægt sé að sleppa laxi.
„Hafa ber í huga að íslenskir laxastofnar eiga almennt undir högg að sækja, þó þeir séu sterkir í samanburði við nágrannaþjóðir okkar. Áskoranir stofnanna eru margvíslegar og í ljósi vaxandi og alvarlegra afleiðinga sjókvíaeldis ættu veiðifélög og veiðimenn ávallt að hafa það að leiðarljósi að ganga vel um stofnana og reyna að viðhalda eins stórum hrygningarstofnum og unnt er. Stórir stofnar veita meira viðnám gegn neikvæðum afleiðingum sjókvíaeldis,“ segir í tilkynningu Landssambands veiðifélaga.