Aðalfundur Skinneyjar-Þinganess hf. hefur samþykkt tillögu stjórnar um að félagið leggi fram kr. 200 milljónir til byggingar nýs húsnæðis undir starfsemi Björgunarfélagsins Hornafjarðar og Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar.

Vart þarf að taka fram mikilvægi Björgunarfélagsins fyrir allt samfélagið á Hornafirði, sem og við landsmenn alla og ferðamenn. Björgunarfélagið stendur nú frammi fyrir því að þurfa að endurnýja aðstöðu sína til að geta haldið áfram að vera öryggisventill okkar allra en m.a. þarf að endurnýja húsakost félagsins og Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar. Er styrkurinn m.a. veittur í tilefni af væntanlegu 80 ára afmæli Skinneyjar-Þinganess á árinu 2026.