Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, áhöfnin á TF-SIF eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, sjóbjörgunarsveitir á Vestfjörðum og áhöfnin á varðskipinu Þór voru kallaðar út laust fyrir klukkan 12 í kjölfar þess að skipstjóri farþegaskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á uppkallsrásinni VHF 16 og tilkynnti að báturinn hefði tekið niðri í Ísafjarðardjúpi, út af Ögri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
„47 eru um borð í bátnum en engar tilkynningar hafa borist um slys á fólki né verið tilkynnt um að leki hafi komið að honum. Sjólag á vettvangi er með besta móti en mikil þoka.
Hópslysaáætlun virkjuð

Vegna fjölda farþega um borð í skipinu var hópslysaáætlun virkjuð og óskað eftir því að samhæfingarstöð almannavarna yrði mönnuð.
Á þessari stundu er unnið að skipulagi þess að koma farþegum frá borði áður en reynt verður að koma skipinu á flot,“ segir í tilkynningunni frá Landhelgisgæslunni.
Aðeins eru nokkrir dagar frá því haldin var björgunaræfing þar sem sviðsett var óhapp með skemmtiferðaskip í Ísafjarðardjúpi eins og lesa má um í þessari færslu á vef Landhelgisgæslunnar.