Baader Skaginn 3X á Akranesi er gjaldþrota.

Þetta kemur meðal annars fram á vef Viðskiptablaðsins þar sem vitnað er til Facebookfærslu Vil­hjálms Birgis­sonar, for­manns Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, munu 128 starfsmenn missa vinnuna.

„Var að koma af fundi rétt í þessu en þessi fundur var vægast sagt gríðar­lega erfiður en á þessum fundi til­kynntu for­svars­menn há­tækni­fyrir­tækisins Skaginn 3 X 128 starfs­mönnum að fyrir­tækið yrði tekið til gjald­þrota­skipta. Þetta gjald­þrot þessa rót­gróna fyrir­tækis þýðir að 128 fjöl­skyldur missa lífs­viður­væri sitt en um 100 af þessum 128 hafa búa hér á Akra­nesi og ná­grenni en Skaginn 3 X er einn af stærstu vinnu­stöðunum hér á Akra­nesi. Rétt er að geta þess einnig að fjöldi af­leiddra starfa tapast einnig sam­hliða þessu gjald­þroti,“ skrifar Vilhjálmur á Facebook.

Sagt frá verulegri óvissu í síðustu viku

Við­skipta­blaðið greindi frá því í síðustu viku að veru­leg ó­vissa ríkti um rekstrar­hæfi Skagans 3X ef ekki tækist að afla við­bótar­fjár­magns.

„Til marks um slæma fjárhagsstöðu Skagans 3X var eigið fé félagsins neikvætt um 3,3 milljarða króna í lok síðasta árs.

Skaginn 3X velti 4,4 milljörðum króna á síðasta ári en árið áður nam velta fé­lagsins rétt rúm­lega 1 milljarði króna. Þess ber þó að geta að eins og fyrr segir voru þrjú dóttur­fé­lög sam­einuð Skaganum 3X.

Þýska fyrirtækið Baader keypti 60% hlut í Skaganum 3X haustið 2020, af stofnandanum Ingólfi Árnasyni, og eignaðist félagið svo að fullu í febrúar 2022,“ segir á vb.is þar sem áfram er vitnað til færslu Vilhjálms Birgissonar á Facebook.

Hvalavertíðinni slátrað af „öfgafólki“

„Fyrir nokkrum dögum var möguleikum okkar á veiðum og vinnslu hvalaafurða á þessari vertíð slátrað með handónýttri og ólöglegri stjórnsýslu stjórnvalda og þrýstingi frá „öfgafólki“. Mitt mat er að núna sé komið nóg og nú verður eitthvað að gerast í atvinnumálum okkar Akurnesinga. Enda morgunljóst að ekkert sveitarfélag getur þrifist án þess að hafa sterkt og öflugt gjaldeyrisskapandi atvinnulíf en það er með slíkum störfum sem öll sveitafélög eflast og styrkjast,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson.